Ahh þá er maður komin aftur suður.
Fór norður á Fimmtudaginn og eyddi honum í faðmi fjölskyldunar
fór reyndar og hitti Hönnu mína í smá stund. Var reyndar varla
komin inn þegar ég klipti Brynju systir.
Á föstudaginn byrjaði ég á því að heilsa upp á gamla félaga í
fristó, Fór með Guffu til að kíkja á liðið. Hjalti kom með alveg
snildar lausn á öllum mínum vandamálum semsagt að þeir myndu opna
hárgreiðslustofu í pásuherberginu þá gæti ég verið á dalvík og þeir
þyrftu ekki að gefa fólki frí til að fara í klippingu ehhehe.
Snildin eina. Eftir það var síðan brunað til Akureyrar með Guðfinnu
þar sem hún setti met í að vera fljót að kaupa sér föt, fórum svo í
áfengisverslunarleiðangur.
Um kvöldið skrapp ég svo til Súsönnu og rak á eftir henni en svo
skuppum við á barin. Hún lét sig reynar hverfa snemma heim vegna
hælsæris eða leiðinda hver veit. En alla vega ég skemmti mér
konunglega með henni Hönnu minni. Hún var svo sæt með tíkó og grænt
hár verð að finna einhverja mynd af henni svoleiðis til að sína
ykkur. En allavega ég talaði við Eydísi og
Bigga Stellu og Súsönnu og öllum leist rosalega vel á hitting hjá
bekknum, verðum bara að fara að plana eithvað.
Laugardagurinn var Euro dagur hinn mesti og ég gerð alla
geðveika á Rússneska Rúmenska og Finnska laginu hehe helv flott.
Horfði svo á Euro með familyuni og fór svo á barinn fínasta fína
skemmtun.
En þynkan dagin eftir var ekki jafn gaman. argh svo ´snjóaði
bara og snjóaði og ég var bara með sumarföt með mér. Hefðuð átt að
sjá mig labba af barnum á laug kv í Sumarkjól og í stórhriíð
hahah.
Fór svo og kaus áður en ég fór suður aftur ekki séns að ég
sleppi því.
En allavega skemmti mér vel um helgina og gaman að sjá alla.
Næstu helgi er svo stefnan sett á óvissuferð og
sumarbústaðaparty.
En chao